Um fimmtíu manns hafa dvalist í tjaldbúðum Saving Iceland á Hengils svæðinu en tilgangur þess er að mótmæla fyrirhugaðri stækkun Hellisheiðarvirkjunar. Einhver fækkun varð þó í þessum hópi í nótt þegar náttúruöflin létu til sín taka. Miriam Rose, einn af talsmönnum samtakanna, segir að um fimmtán til tuttugu manns hafi þurft frá að hverfa vegna úrhellisrigningar en þeir muni snúa aftur í dag með réttan útbúnað til þess að kljást við íslenska veðráttu. ...